Í Skógarhúsinu dvelur ein deild af Ævintýrum í einu viku í senn. Útivera og tenging við náttúruna eru veigamestu verkefnin og börnin fara í gönguferðir og náttúruskoðanir um nágrennið og víðar í öllum veðrum. Þar sem Skógarhúsið er lítið og nálægðin mikil þurfa allir að hjálpast að og taka þátt í heimilishaldinu. Börnin aðstoða við að taka úr og setja í uppþvottavélina, leggja á borð, brjóta saman þvott og margt annað sem til fellur á stóru "heimili".
Skógarhúsið er við Elliðabraut 12-16 og síminn þar 534 6145 og 680-3510.
Starfsfólk Skógarhúss
Edda Lydia Þorsteinsdóttir
Deildarstjóri
Edda Lydia er leikskólakennari.
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.